29.2.2008 | 21:56
Borgarstjórn Reykjavíkur er alveg rúin trausti

Það eru sögulegir umbrotatímar í stjórnmálum í Reykjavíkurborg. Uppi er ástand sem aldrei hefur gerst áður. Þrátt fyrir að jafnmargir borgarstjórar hafi setið á þessu kjörtímabili og hinu síðasta er R-listinn lenti í vandræðum með borgarstjóramál sín; sögulega afsögn borgarstjóra vegna hneykslismáls og eftirminnileg starfslok þaulsetins borgarstjóra vegna innri sundrungar, eru borgarbúar óvanir því að óstöðugleiki sé uppi með þeim hætti að meirihlutar komi og fari. Því er ekki að neita að þetta er erfið staða en í þeirri stöðu reynir á þá sem fara með völdin.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista tók við völdum við mjög erfiðar aðstæður og mikið verkefni blasir við Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra, að sýna að meirihlutinn standi undir verkefninu og geti stýrt af krafti. Mér finnst það ekki óeðlilegt að kjósendur telji stjórnmálamenn ekki hafa staðið undir nafni - ekki getað fært stöðugleika í pólitísku starfi. Enn er langt til kosninga, rúmir 26 mánuðir, og fjarri því að afgerandi reynsla hafi komið á nýjan meirihluta og borgarstjórann eftir innan við hundrað daga við völd.
Það er eðlilegt að hver meirihluti fái sinn tíma og borgarstjórinn ennfremur. Á þessum ólgutímum er eðlilegt að rót sé á fylgi og fólk sé að átta sig. Um leið þarf reynsla að komast á meirihlutann og rykið að setjast. Þá fyrst kemur marktæk mæling á stöðu mála. En þetta er áfellisdómur. Einfalt mál. Nú reynir á kjörna fulltrúa.
![]() |
Aðeins 9% treysta borgarstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.2.2008 | 17:57
Íslensk fegurð klikkar aldrei
Finnst þetta í góðu lagi, enda er það ákvörðun hvers og eins er fer í þessar keppnir að gera það. Út úr þessu hafa komið mörg góð tækifæri fyrir viðkomandi, sem er ánægjulegt í alla staði. Persónulega hef ég aldrei haft neitt á móti fegurðarsamkeppnum. Mér finnst að þetta sé val einstaklinganna sem taka þátt hvort þeir gera það eður ei. Þeir sem vilja keppa gegn öðrum með fegurð sinni eiga að hafa frelsi til þess.
![]() |
Ásdís Rán gæti unnið tugi milljóna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.2.2008 | 16:32
Ágúst rekur nemendurna þrjá með dópið á Bifröst

Háskólinn á Bifröst er enda menntastofnun sem vill hafa háan standard og vera hafin yfir svona. Það er auðvitað aldrei hægt að útiloka að óregla sé í skólum landsins en í þessum efnum skiptir mestu að yfirmenn skólans séu með skýrar og afgerandi reglur um hvað megi og hvað megi ekki á svæðinu. Þarf varla að efast um það meira.
Skrifaði aðeins um þetta mál í gærkvöldi. Fékk ýmis viðbrögð á það. Sumum fannst ég taka sterkt til orða þegar að ég sagði að þetta mál væri dökkur blettur á skólanum. Stend við þau orð og ég get ekki betur séð en að ákvarðanir rektorsins hafi staðfest að hann vill ekki hafa þennan stimpil á skólanum sem hann stýrir, sem eru jákvæð skilaboð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.2.2008 | 13:28
Jóhanna Vilhjálms áfram í Kastljósi

Eðlilega lagði Þórhallur mikla áherslu á að halda í hana. Jóhanna sýnt og sannað með verkum sínum að hún er ein besta sjónvarpskona landsins og hefur staðið sig vel í verkum sínum; verið beitt sem spyrill og heiðarleg í umfjöllun. Ekki hikað við að taka á málum og verið beinskeytt í spurningum ekki hikað í neinu.
Annars er Kastljós mjög góður þáttur, áhorfsmælingar sýna að það er einn vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins og þar er góður mannskapur. Það er gott að Jóhanna verði þar áfram.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.2.2008 | 00:39
Fíkniefni finnast í skólasamfélaginu á Bifröst
Mér finnst Háskólinn á Bifröst hafa verið mjög flottur skóli og hann hefur haft þá ímynd á sér að vera traustur og öflugur, spútnikk-skóli á mikilli uppleið. Það er alltaf svolítið ímyndarkrísa sem fylgir svona vondum fregnum fyrir skólasamfélag en vonandi er enginn alvarlegur vandi þarna, þó greinilega sé eitthvað ekki alveg í lagi.
![]() |
Fíkniefni fundust á Bifröst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.2.2008 | 22:50
Dagur vill frekar austurríska liðið en hið íslenska

Það er greinilegt að Dagur ætlar sér að halda áfram starfi hjá Val með þjálfun í Austurríki. Þetta er svolítið sérstök staða fyrir okkur íslenska handboltaáhugamenn sem vildum að Dagur tæki við landsliðinu. Þó að um sé að ræða landslið sem er nokkrum klössum lægri en hið íslenska er þetta visst tækifæri fyrir Dag að sýna styrk sinn sem þjálfara og reyna sig fyrir önnur verkefni. Enda vill hann greinilega verða landsliðsþjálfari hér síðar meir.
Þetta er allt mjög spes og eðlilegt að spurt sé hvort að framtíðarsýn HSÍ með landsliðið hafi verið of veik fyrir sterkan þjálfara að taka við. Enda er greinilegt að samið er við nýjan landsliðsþjálfara, Guðmund Guðmundsson, til skamms tíma og greinilegt að eftir Ólympíuleikana á að hugsa hlutina upp á nýtt. Það þarf að skapa alvöru framtíðarsýn með landsliðið og tryggja farsæla forystu í gegnum næstu verkefni. Vonandi mun Guðmundi takast það.
Svo er aftur á móti stórt spurningamerki hver verði landsliðsþjálfari í árslok, þegar að verkefni Guðmundar er lokið og hvort að staðan verði þá ákjósanlegri fyrir þá íslensku þjálfara sem höfnuðu að taka við liðinu, meira að segja til að prufa sig áfram með önnur slakari lið.
![]() |
Dagur að taka við þjálfun austurríska landsliðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.2.2008 | 19:40
María Sigurðardóttir nýr leikhússtjóri hjá LA
Ég er ánægður með að stjórn Leikfélags Akureyrar hefur valið Maríu Sigurðardóttur, leikkonu og leikstjóra, sem nýjan leikhússtjóra í stað Magnúsar Geirs Þórðarsonar, nýs leikhússtjóra Borgarleikhússins. Með því fáum við pottþétt fagmanneskju úr leikhúsi til starfa, sem kann sitt fag og getur tekið við starfinu með tryggan bakgrunn og getur stýrt af þekkingu og krafti.
Við hér á Akureyri höfum upplifað yndislega spútnikk-tíma með leikhúsið, þar sem það hefur slegið hvert metið á eftir öðru og mikill kraftur verið í uppbyggingu. Það starf hefur Magnús Geir leitt með sóma og ég tel að við getum verið viss um að María mun halda áfram því verki og standa sig virkilega vel.
María leikstýrði Fló á skinni, sem nú er á fjölunum hjá leikfélaginu. Það er frábær og vönduð sýning sem vert er að mæla með. Vil óska Maríu til hamingju með starfið og býð hana velkomna hingað norður.
![]() |
María leikhússtjóri á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2008 | 17:27
Hrottaleg árás - mun lögreglan fá rafbyssur?
Það er alveg ljóst að þessi árás á lögreglumennina mun verða notað sem ástæða til að vopnvæða lögregluna enn frekar og það er þegar augljós undiralda í þá átt nú þegar að lögreglan þurfi að fá rafbyssur til að verjast. Þessi árás er það hrottaleg og skelfileg að það verður erfitt að stöðva það að löggan fái þau vopn og greinilegt er að yfirmenn lögreglunnar og ráðherrann horfa til þess í kjölfar þessarar árásar að lögreglan geti varið sig betur.
Hef ekki verið hlynntur því að lögreglan noti rafbyssur en það er ljóst að þessir menn hafa veitt lögreglunni og þeim sem ráða þar för sterk rök fyrir máli sínu að taka upp þessi vopn.
![]() |
Minnti á rothögg í boxi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.2.2008 | 17:02
Borgin á verk Kjarvals - fjölskyldukröfu hafnað

Eins og flestir vita er meginhluti verkanna geymdur á Kjarvalsstöðum, en safn borgarinnar var nefnt eftir Jóhannesi og er á Klambratúni í Reykjavík. Barátta Ingimundar og fjölskyldu hans er orðin mjög löng. Hef ég fylgst með henni nokkurn tíma, en á síðustu árum hefur Ingimundur verið virkur við að skrifa á spjallvefnum Málefnin, en þar skrifaði ég reglulega þar til að ég hætti því endanlega fyrir rúmu ári.
Niðurstaðan í dag er mjög lík niðurstöðu héraðsdóms í janúar 2007. Stór hluti niðurstöðunnar í dómnum í dag virðist enda, rétt eins og í héraðsdómi, byggður á orðum og ummælum Geirs Hallgrímssonar, fyrrum forsætisráðherra, sem var borgarstjóri í Reykjavík árið 1968 er samningurinn kom til sögunnar.
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu máli í kjölfarið. Ingimundur hefur barist árum saman fyrir því að fá yfirráð yfir listasafni afa síns. Sú barátta er nú töpuð og fróðlegt að heyra viðbrögð Ingimundar við þessu.
![]() |
Dánarbú Kjarvals á ekki myndir Reykjavíkurborgar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2008 | 12:12
Í minningu Árna frænda

Hefur mér alla tíð þótt mjög vænt um Árna og metið hann mikils. Hann var aðeins örfáum mánuðum yngri en amma mín, Sigurlín Kristmundsdóttir, en þau voru æskuvinir á Eskifirði og höfðu samskipti alla tíð. Árni var fyrsti skólafélaginn hennar eftir að hún fluttist til Eskifjarðar árið 1923 og héldust þau vinabönd alla tíð - hann skrifaði fallega minningargrein um hana þegar að hún lést aldamótaárið sem mér þótti svo innilega vænt um.
Árni var einfaldlega traustur og sannur maður. Hann var trúr sínum lífsskoðunum og baráttumálum. Hann lagði engum illt til. Á ættarmótum Högnastaðafjölskyldunnar var Árni sjálfkjörinn í að setja saman fróðleik og vísur, en hann var rómaður hagyrðingur sem setti saman vísur við öll tilefni og skilur hann eftir sig merkilegt safn fallegra vísna, sem fjalla vel um bæði stjórnmál og mannlífið sjálft.
Það var alltaf virkilega notalegt að fylgjast með eljunni í Árna. Hann var alltaf að, skrifaði greinar í Morgunblaðið nær alveg fram í andlátið, skrifaði dagbókina sína þar til daginn áður en hann dó og hafði skoðanir á öllum málum. Áhugi á þjóðfélagsmálum var honum sem í blóð borið og það var honum mikilvægt að fylgjast vel með. Það mátti alltaf stóla á að hann væri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hann sat landsfundi í yfir sextíu ár - var vel með á alla hluti og algjör fróðleiksbrunnur.
Mér þótti mjög vænt um að sjá hann á sambandsþingi SUS í Stykkishólmi haustið 2005. Þar var hann, rúmlega níræður, einn af fundarmönnum nær allt þingið. Hann sat yfir þingstörfum og fylgdist mjög vel með, einkum á laugardeginum þegar að farið var yfir ályktanir og ræddi málin við okkur. Tók spjall við mig um hvernig staðan væri með þetta mál hjá okkur og hitt. Þannig var Árni, hann var áhugasamur um það sem við vorum að gera og fylgdist með.
Árni var rómaður bindindismaður og varði þau gildi sín alla tíð, oftast nær í greinum í Morgunblaðinu. Það var gagnlegt og fróðlegt að lesa skrif Árna um áfengismál og hann lét ekki sinn hlut í þeirri baráttu, var einlægasti og traustasti bindindismaður sem ég hef kynnst. Hann var um áratugaskeið fréttaritari Moggans - hann unni blaðinu og vann því vel alla tíð. Það væri gaman að vita, nú að leiðarlokum, hversu margar greinar hann skrifaði í blaðið.
Og trúr var hann Sjálfstæðisflokknum. Það var alltaf yndislegt að heyra sögur Árna af samskiptunum við forystumenn flokksins, en hann þekkti þá alla persónulega, nema Jón Þorláksson sennilega. Árni var í hópi þeirra sem fyrstur tók þátt í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins og varð eftir það traustur vinur og bandamaður Gunnars Thoroddsens, sem var um tíma þingmaður Snæfellinga.
Þrátt fyrir að Árni frændi væri heiðursborgari í Stykkishólmi var hann ekki úr Hólminum, þó að hann sé einn þeirra manna sem helst eru tengdir við staðinn. Hann var Eskfirðingur, en fluttist vestur í upphafi fimmta áratugarins og bjó þar alla tíð síðan. Þangað fluttu ennfremur tveir bræður móður minnar, Kristinn og Guðni Friðrikssynir. Settu þeir sterkan svip á samfélagið þar.
Að leiðarlokum kveð ég Árna frænda minn með virðingu og þakklæti fyrir allt sem hann gerði fyrir fjölskyldu mína. Hann var trúr sínu fólki og var í góðum samskiptum við móður mína síðustu mánuðina sem hann lifði og sendi henni notalegar kveðjur í veikindum hennar, skrifaði henni meðan að kraftar entust og hafði símasamband við okkur.
Það er skarð fyrir skildi við andlát Árna. Guð blessi minninguna um þennan heilsteypta og vandaða mann.
![]() |
Árni Helgason látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.2.2008 | 00:23
Dapurt ástand - verður Eurovision haldið í Serbíu?
Það vekur athygli að sérstaklega þurfi að hafa áhyggjur af öryggi þátttakenda í Eurovision er keppnin verður haldin í Serbíu eftir nokkra mánuði. Það er svosem eðlilegt að umræða sé um pólitíska stöðu í landinu og greinilegt er að staða mannréttinda þar er ekki beint beysin. Samkynhneigðir þátttakendur virðast óttast um öryggi sitt við að fara til Serbíu og reyndar er öllum ljóst eftir óeirðir og læti í Serbíu að það er ekkert öruggt við að fara þangað.
Sérstaklega er þessi umræða um stöðu samkynhneigðra í Serbíu mjög merkileg einkum í ljósi þess að serbneska söngkonan, Marija Serifovic, sem vann keppnina í Helsinki í fyrra er samkynhneigð og var mjög fjallað um persónu hennar og lífsstíl einmitt fyrir ári þegar að hún vann. Það er eðlilegt að rætt sé opinskátt um stöðuna í Serbíu. Heyrði umræðu um daginn þar sem velt var fyrir sér hvort Serbía væri ákjósanlegur keppnisstaður og öruggur að öllu leyti. Sitt sýnist hverjum um það og það virðist vera ólga undir niðri með staðsetninguna.
Það hefur þó ekki gerst áratugum saman, jafnvel frá upphafi, að keppnin sé færð til og gestgjafinn afsali sér því að halda utan um pakkann. Var síðast rætt um það þegar að Írland hélt keppnina í fimmta skiptið á innan við áratug og þótti mörgum þar þá nóg komið um kostnaðinn og fleira. Síðan hafa Írar reyndar ekki þurft að hafa miklar áhyggjur og er reyndar svo komið nú að þeir senda kalkún sem sinn fulltrúa.
Mér finnst áhyggjur um stöðuna í Serbíu réttmætar og eðlilegt að taka þessa umræðu. Það bendir þrátt fyrir allt þó til þess að þeir sem greinilega óttast um öryggi sitt verði að fara til Serbíu, nema þá að yfirmenn keppninnar taki af skarið af ótta við stöðu mála á svæðinu. En kannski munu menn taka áhættuna, vitandi af pólitísku ástandi þar og stöðu mannréttindamála.
![]() |
Samkynhneigðir varaðir við því að fara til Serbíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.2.2008 | 23:55
Franskt fylgishrun - hallar undan fæti hjá Sarkozy
Það hafa fáir forsetar á síðustu árum fengið betri byr í seglin til að taka við völdum en Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands. Innan við ári eftir glæsilegt forsetakjör og sigur í þingkosningum eru Frakkar að missa trúna á forsetanum - fylgir hrynur af honum og virðist þar í senn um að kenna umdeildu einkalífi hans og skapgerðarbrestum. Það fór illa í franska alþýðu þegar að forsetinn sagði gesti á landbúnaðarsýningu að fara til fjandans.
Svo er alveg greinilegt að Frakkar eru ekki parhrifnir af nýrri forsetafrú sinni, Clöru Bruni, sem Sarkozy giftist í byrjun mánaðarins. Umdeilt einkalíf forsetans með Bruni í aðdraganda giftingarinnar fær augljóslega falleinkunn í þessari mælingu og augljóst að hin nýja forsetafrú, sem fræg er af tónlistar- og fyrirsætustörfum auk ástarsambands við Eric Clapton og Mick Jagger, er ekki beint að reynast vinsæll fylgihlutur forsetans. Þvert á móti er virðingin fyrir forsetaembættinu undir verkstjórn Sarkozy á hraðri niðurleið.
Sarkozy virðist vera að klúðra sínum málum semsagt svakalega, aðeins á innan við ári. Það eru vissulega enn fjögur ár til forsetakosninga, en þessi vonda mæling forsetans, sem hafði metstuðning í könnunum og frábæran kosningasigur í farteskinu við embættistökuna í Elysée-höll, skaðar hægristjórnina í Frakklandi og gæti leitt til vondrar stöðu hægrimanna í byggðakosningum.
Þegar að Sarkozy tók við af Jacques Chirac í maí á síðasta ári var litið á hann sem fulltrúa nýrrar tíma og hann fékk traust umboð til að vera boðberi þess. Það virðist vera að honum sé að mistakast að halda stuðningi franskra kjósenda og er það um leið áfall fyrir franska hægrimenn sem treystu Sarkozy fyrir því að leiða þá til áhrifa og valda um langt skeið.
![]() |
Stuðningur við Sarkozy fer dvínandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 22:21
Eiga stjörnurnar sér einhvern snefil af prívatlífi?

Mér finnst svolítið spes að lesa þessa frétt um Jennifer Aniston. Er þetta ekki umræða sem fer ansi nærri prívatlífi viðkomandi stjörnu? Hvernig stendur á því að þessi atriði koma okkur yfir höfuð við? Veit ekki hvers vegna við ættum að vera að velta því fyrir okkur hvernig ástalífi þessi stjarna lifir og hverjir sofi hjá henni og hversu langt er síðan.
Rými stjarnanna er oft ekki mikið. Líf þeirra hlýtur æði oft að vera litlaust og leiðinlegt. Einkalíf stjarnanna verður almannaeign merkilegt nokk. Ég veit ekki af hverju þetta kemur okkur við. En það virðist samt eiga að vera okkur mikilvægt.
Það er svosem ekkert að hugleiðingum um feril stjarnanna og hvað þau eru að gera í sínum verkum en svona prívat finnst mér að eigi að vera þeirra, ekki annarra.
![]() |
Ekkert kynlíf í hálft ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2008 | 20:56
Umferðarslys á Reykjanesbraut
Það er dapurlegt að heyra af enn einu alvarlegu umferðarslysinu, nú á Reykjanesbraut. Enn er ekki lokið framkvæmdum við brautina og er það óskiljanlegt að ekki hafi tekist að klára verkið enn og eftir standi lausir endar í framkvæmdum. Þrátt fyrir það er orðið nokkuð langt síðan að fréttir hafa borist af slysi á þeirri miklu hraðbraut, ef undan er aðeins skilið eitt slys undir lok síðasta árs.
Eftir að hluti Reykjanesbrautar var tvöfaldaður hefur slysatíðni minnkað verulega og ég held að það sé rétt munað hjá mér að þar hafi ekki verið banaslys frá því að tvöfölduð braut var vígð. Það var mikil samgöngubót að tvöfalda Reykjanesbrautina og vonandi verður því verki lokið sem fyrst. Þar dugar ekki hik.
Tvöföldun Reykjanesbrautar hefur sýnt vel hversu mikilvægt verk það var og hversu mikilvægt er að stefna að tvöföldun stofnleiðanna út frá Reykjavík.
![]() |
Harður árekstur á Reykjanesbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2008 | 17:51
Gaukur áfrýjar - eðlilegt að fá álit Hæstaréttar
Ég fagna því hinsvegar að fram komi dómur sem sýni hvað sé eðlilegt og hvað ekki á netinu. Enda mátti finna fyrir því að sumir sem skrifa hvað sem þeim dettur í hug án þess að bera virðingu fyrir öðrum var ekki pent sama um niðurstöðuna. Það er eðlilegt að öllu frelsi fylgi ábyrgð. Það verður að vera öllum ljóst að bloggskrif eru opinber, þetta er fjölmiðill sem þarf að skrifa á af ábyrgð og við berum fulla ábyrgð á því sem við skrifum. Bloggskrif eru ekki bara blaður út í bláinn.
Það er gott að fram komi hvar mörkin séu og hver staða mála sé. Í aðstæðum sem þessum þarf að fá álit Hæstaréttar og er eiginlega þarfaverk að fara með málið alla leið til að fá úrskurð þar um.
![]() |
Gaukur mun áfrýja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2008 | 17:07
Einar heimilar aftur loðnuveiðar - góð tíðindi

Það er gleðidagur fyrir landsbyggðina að veiðarnar geti hafist aftur og vonandi mun ganga vel að veiða þann kvóta sem veittur verður. Það er viðbúið að aflamarkið lækki örlítið en það er fyrir mestu að veiðarnar geti hafist og þetta verði sem eðlilegast. Fyrri ákvörðun var skelfileg að öllu leyti og því bjartara yfir öllum í dag að fyrri niðurstaða var ekki endanleg.
![]() |
Loðnuveiðar heimilaðar á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 13:14
Umdeild ummæli Friðriks Ómars

Það er eðlilegt að hver og einn hafi skoðanir á ummælunum en eftir stendur að Friðrik Ómar hefur tjáð sig vel um það hverjum ummælin voru ætluð og hver ástæðan að baki þeim hafi verið. Það hlýtur að teljast nægjanleg skýring og málinu eigi þar með að vera lokið. Það er enda ekkert meira eftir um að tala og staða málsins vel ljós eftir yfirlýsingar Friðriks Ómars, t.d. í Kastljósi.
Það er ljóst að mikil keppnisharka var á milli Mercedes Club og Eurobandsins og það féllu leiðinleg ummæli frá báðum aðilum fyrir og eftir keppnina. Það er ekkert meira um það að segja. Úrslitin eru ljós og þjóðin valdi sigurvegarann mjög afgerandi. Það deilir vonandi enginn um það hver sigraði og hvort lagið var betra.
Þessi deila um ummælin er þó ekki til neins fallin nema að rýra báða aðila og vonandi er að þeir aðilar geti sæst og hætt leiðinlegum persónulegum hnútuköstum og árásum hvort í annars garð.
![]() |
Mikil umræða um ummæli Friðriks Ómars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.2.2008 | 01:36
Eru nafnleysingjarnir hræddastir við bloggdóminn?
Bloggdómurinn er sögulegur og markar tímamót í bloggheimum. Eðlilega, enda er þar loksins ljóst að bloggið er fjölmiðill og þeir sem þar skrifa bera fulla ábyrgð á því sem þeir segja. Það er mjög gott að þeir sem ganga lengst í skítkasti og vega að fólki með skrifum sínum viti að þeir verða að bera ábyrgð á því sem þeir segja. Það er væntanlega svo að nafnleysingjarnir sem blogga og ráðast að fólki með ómerkilegum hætti eru einna hræddastir við þennan dóm og þau tímamót sem hann boðar. Það er eðlilegt í sjálfu sér.
Það er fjarstæða að þessi dómur sé atlaga að málfrelsinu. Öllu frelsi verður að fylgja ábyrgð. Við eigum alveg að geta tjáð skoðanir okkar og tjáð það sem við viljum um málefnin sem hæst bera án þess að ráðast persónulega að fólki og vega að einhverjum ómerkilega og vera rætin í skrifum. Það er eðlilegt að þeir sem verði fyrir þannig árásum sæki sinn rétt og það gerði Ómar R. Valdimarsson. Eðlilegt bara. Hann vildi fá ummæli dæmd dauð og ómerk, fannst vegið að sér. Dómarinn tekur undir kröfu hans.
Það er virkilega gaman að blogga. Sem betur fer er okkur bloggurum alltaf að fjölga. En það verður að vera öllum ljóst að öllu frelsi fylgir ábyrgð - með því að skrifa erum við að byggja upp eigin fjölmiðil og við verðum að vera meðvituð um að skrifin geta orðið umdeild. Þessi sögulegi dómur mun vonandi færa okkur uppbyggilegri og heiðarlegri skrif og umfjöllun á netinu. Það er eðlilegt að ljóst sé að þeir sem blogga bera fulla ábyrgð á skrifum sínum, það er ekkert prívat við það.
27.2.2008 | 00:34
Formaður víkur vegna vínveitinga nemendafélags
Mér finnst formaður nemendafélagsins í FVA á Akranesi gera hið rétta með því að víkja og taka ábyrgð á því að félagið veitti nemendum áfengi. Nemendafélög framhaldsskólanna eiga að gera eitthvað allt annað en kaupa áfengi til að gefa nemendum. Þar á að vera heilsteypt og vandað félagsstarf, þau eiga að standa fyrir áfengislausum samkomum og eiga að sýna gott fordæmi að hægt sé að skemmta sér áfengislaust allavega þegar að skólinn er annars vegar.
Það er aldrei hægt að koma í veg fyrir unglingadrykkju, en þeir sem stýra nemendafélögunum eiga að vera fyrirmyndir að því leyti að geta haldið skemmtanir eða farið í skólaferðir án þess að áfengi sé þar í aðalhlutverki. Þetta er ekki til fyrirmyndar og því er það rétt hjá formanninum að taka ábyrgðina og víkja. Það er eðlilegt að skólayfirvöld vilji tryggja að nemendafélögin hafi á sig aðra ímynd en vera að veita áfengi.
Þessi strákur sem leiddi nemendafélagið er allavega maður að meiri að taka ábyrgðina á sig með þessum hætti og segja af sér. Það er mannlegt að gera mistök en það verður að tryggja að nemendafélögin séu á hærri standard en svo að standa fyrir nemendafylleríi.
![]() |
Sagði af sér formennsku að beiðni skólameistara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.2.2008 | 17:40
Gaukur áfrýjar bloggdómi til Hæstaréttar
Það er eiginlega varla komið alvöru fordæmi um niðurstöðu í dómum um bloggskrif nema að Hæstiréttur felli úrskurð í málinu. Það er því vonandi að Gaukur áfrýji og farið verði með málið alla leið í réttarkerfinu hérna heima. Mér finnst reyndar ákjósanlegt að það sé ljóst hvað megi og megi ekki. Fari svo að Ómar vinni í Hæstarétti er enda kominn upp viss siðferðisrammi yfir það sem skrifað er á netinu, einkum í bloggheimum, um persónur og eitthvað fordæmi um hvernig slík mál fara.
Mér fannst reyndar Gaukur ganga mjög langt í orðavali sínu og skil vel að Ómar hafi ekki viljað sitja undir slíkum nafngiftum og hann fékk í skrifum Gauks. En það eru ekki allir sem nenna að eltast við slík skrif um sig, enda held ég að mjög margir hafi lent í einhvers konar skítkasti og leiðindum í bloggheimum. En þess þá betra er að setja upp ramma um hvernig skrifa skal í bloggheimum og ágætt að til staðar sé dómur sem hægt er að vitna í þegar að deilt er um bloggskrif, hvernig svo sem þau eru og hversu slæmt skítkastið verður.
Ég hef bloggað í mörg ár og eiginlega finnst mér merkilegt hvað svona dómur kemur seint hérna heima þar sem bloggið er til umfjöllunar. Það eru orðnar mjög margar bloggsíðurnar hér heima sem eru virkar og bloggbólan er fjarri því sprungin, eins og svo margir hafa spáð árum saman. Því er það til hins góða að svona mál fari fyrir dómstóla og þessi umræða um skítkast í bloggheimum fari í dómssali en verði ekki bara virk í netpælingum.
![]() |
Dómi líklega áfrýjað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)