17.6.2008 | 00:32
Ísbjarnarblús á Skaga - kemst bangsi heim?

Mesta kaldhæðnin í þessu er þó sú að eiginlega er ekki verið að bjarga bara þessum ísbirni heldur stjórnmálaferli Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra. Hún á mjög mikið undir því að málið klárist farsællega. Þórunn var mjög vandræðaleg í ísbjarnarmálinu fyrra og vissi varla í hvorn fótinn ætti að stíga, leit ekki vel út sem ráðherra og virkaði bæði klaufaleg og flumbruleg.
Enda er greinilegt að margir Samfylkingarmenn eru orðnir langþreyttir á klúðrinu í henni - andstaðan við hana kemur vel fram í nýjasta riti vinstriblaðsins Herðubreiðar, ef marka má fréttir. Greinilegt er að flokksfélagar Þórunnar hafa orðið fyrir vonbrigðum með ráðherraferil hennar. Fyrir Þórunni verður því björninn að lifa og þetta er björgunaraðgerð fyrir stjórnmálaferil hennar mun frekar en dýrið. Eðlilega var því reynt að taka á málinu með öðrum hætti en síðast.
Þessi ísbjarnarblús verður spennandi á morgun þegar að "björgunaraðgerðin mikla" hefst á Skaga fyrir alvöru. Væri gaman að vita hvernig þeim líður sem stendur vaktina yfir dýrinu í nótt. Og nú fer bangsi í ný heimkynni í boði Björgólfs Thors. Fær þó sennilega ekki flugferð í einkaflugvél Björgólfsfeðga. Mikið PR fyrir feðgana, ætli Baugsfeðgarnir sjái ekki eftir að hafa ekki boðið í verkið, jafnvel betur.
En fer bangsinn virkilega heim. Á að senda hann í dýragarð og geyma hann þar? Hvað varð um allt hástemmda talið um að senda hann "heim" til sín? Svolítið fyndin yfirborðsmennska undir öllu glamrinu.
En já, aumingja Þórunn. Vonandi nær hún að klára þetta mál með sóma. Björgunaraðgerðin "Björgum Bangsa og Þórunni" verður eflaust aðalfréttaefnið á sautjánda júní þetta árið.
![]() |
Ísbjörninn rólegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.6.2008 | 00:36
Er hægt að fyrirgefa þeim sem slátruðu Sharon?

Enn sitja forsprakkar Manson-hópsins í fangelsi, afplána lífstíðarfangelsi. Nú þegar Susan Atkins, sú sem veitti Sharon banastungurnar þrátt fyrir að Sharon grátbæði hana um miskunn fyrir sig og son sinn, er orðin dauðvona, langt leidd af krabbameini og horfist í augu við endalok sín vill hún fá náðun og lifa sína síðustu mánuði frjáls, eiga sér nokkra mánuði utan fangelsins og deyja frjáls kona, laus við að afplána sína refsingu.
Stóra spurningin á þeim krossgötum er hvort Susan Atkins verðskuldi frelsið, fá tækifæri til að lifa sín síðustu augnablik sem frjáls kona. Ég er ekki á þeirri skoðun og finnst að hún eigi að deyja í þeirri afplánun sem hún kom sjálfri sér í með því að taka þátt í morðunum á sjöunda áratugnum við hlið Charles Manson. Ekki er hægt að gleyma því sem gert var né heldur að strika yfir það.
Vissulega er það áleitin spurning hvort frelsið sé valkostur fyrir þá sem fremja svo alvarlega glæpi, hvort þeir eigi að fá tækifæri til að upplifa lífið án refsingarinnar sem markaði örlög þeirra. Mér finnst ekki hægt að horfa framhjá því sem Manson-hópurinn gerði á sínum tíma, með því að slátra ekki aðeins hinni 26 ára gömlu leikkonu, Sharon Tate, heldur öðru fólki á þeim tíma.
Morðið á Tate hefur að ég tel ekki fallið í gleymskunnar dá. Hún var að því komin að eiga barnið sitt er henni var slátrað og hún var gift einum frambærilegasta leikstjóra sinnar kynslóðar og var sjálf mjög þekkt leikkona. Allt þetta mál er skelfilegt og í þeim efnum er ekki hægt að gleyma og það til þess eins að upphefja manneskju sem er sjálf komin að fótum fram og vill fyrirgefningu.
Susan gekk reyndar það langt þegar að hún slátraði Sharon að hún skrifaði Pig utan á hurðina á húsi Polanski-hjónanna með blóði úr Sharon. Það er vanvirðing við minningu Sharon Tate að velta því fyrir sér lengur en eina sekúndu að náða þessa konu.
![]() |
Vill fá frelsi áður en hún deyr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.6.2008 | 20:56
Ísland fær ekki farmiða á HM - töpuðu úti
Þeir áttu ekki betra skilið en þetta og verða bara að bíta í það súra að þurfa að sitja heima. Þess í stað verður liðið að sýna sitt besta á Ólympíuleikunum í Peking núna í sumar. En auðvitað er það slæmt að landsliðinu hafi ekki tekist að tryggja sæti á HM, en þetta er einfaldlega staðan. Þrátt fyrir góðan seinni hálfleik tókst þetta ekki. Með tapinu úti gerði liðið sér baráttuna erfiðari en ella og svo fór sem fór.
Vonandi er að landsliðið taki sig saman í andlitinu og færi okkur betri handbolta á Ólympíuleikunum en þeir sýndu úti fyrir viku þar sem baráttan fyrir HM-sætinu tapaðist með afspyrnuslappri frammistöðu.
![]() |
Ísland kemst ekki á HM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2008 | 11:25
Gróf ofbeldisnótt á Akureyri - ráðist á lögguna
Jæja, þetta var heldur betur dramatísk nótt hér á Akureyri, umfram allt gróf ofbeldisnótt. Gekk þetta það langt að löggan beitti varnarúða og kylfum, gat ekki annað. Mér fannst löggan standa sig vel miðað við erfiðar aðstæður og vil hrósa henni fyrir að standa vaktina með sóma. Hún tók vel á málum og ofbeldismenn sem fóru yfir strikið voru teknir fyrir.
Þar sem ég var í miðbænum í nótt sá ég ýmislegt og var hissa á því hvað fólk gekk langt gegn lögreglunni. Engin takmörk virtust á því hvað ofbeldið gat orðið brútalt og yfirgengilegt og auðvitað þurfti löggan að verjast. Þegar sótt er að lögreglunni verður hún að nota það sem hún hefur til varnar. Ekkert annað hægt að gera. Sá úr fjarska þessa margumtöluðu skoteldaárás á lögguna. Heyrði fyrst bara hvellina og var mikið að spá í hvað þetta var og sá svo þennan atburð er nær kom.
Finnst eiginlega mest áberandi hvað ofbeldið er orðið brútalt og hvað er gengið langt. Engin mörk virðast vera á grimmdinni og heiftinni er út í ofbeldið er komið og virðist fátt heiðarlegt í slíku. Þarna voru tilteknir einstaklingar aðeins komnir til þess að berja á fólki sem var að skemmta sér og taka fæting við lögregluna. Svona götuslagsmál og harkalegar árásir á lögregluna sýna vel hversu ofbeldið er orðið brútalt og erfitt, er því miður aðeins ein hliðin á því þegar sumir geta ekki skemmt sér nema ráðast að öllu í kringum þá.
Man allavega ekki eftir verri nótt hér á Akureyri og hef ég upplifað svosem ýmislegt á djamminu í bænum á stórhelgum og er hátíðir hafa verið hér í bænum. Lögreglan stóð sig mjög vel miðað við aðstæður og á hrós skilið fyrir það hversu vel hún tók á málum.
![]() |
Erfið nótt á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2008 | 14:05
Heil á húfi
![]() |
Litla stúlkan fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2008 | 00:18
Uppskerukvöld fyrir LA - stjarnan Brynhildur

Magnús Geir hefur auðvitað unnið frábært starf með Leikfélag Akureyrar. Undir hans stjórn reis leikfélagið upp úr miklu niðurlægingartímabili þar sem staða leikfélagsins var komin í vafa, ekki vitað hver framtíðin yrði og allt í rokna mínus. Síðan hefur leikfélagið verið í fremstu röð. Hver sýningin á eftir annarri slegið áhorfendamet, fjöldi hæfileikaríkra ungra leikara hafa séð tækifæri í því að koma norður og vinna með því og síðast en ekki síst hefur fólk komið af öllu landinu hingað norður og notið kvöldstundar í leikhúsinu okkar gamla og góða.
Sá ferski vindblær sem hefur einkennt þessa velgengni er að mínu mati Magnúsi Geir einum að þakka, þó margir hafi lagt hönd á plóg. Magnús Geir var í forystu og bjó til þá stemmningu sem síðan hefur orðið leiðarljós Leikfélags Akureyrar í frábærum sýningum. Nægir þar að nefna; Fullkomið brúðkaup, Óvita, Ökutíma, Svartan kött, Dubbeldusch, Herra Kolbert, Maríubjölluna, Lífið - notkunarreglur, Óliver og Litlu hryllingsbúðina. Eftirsjá er af Magnúsi Geir nú þegar að hann er farinn héðan og heldur til verka í Borgarleikhúsinu. Veit að hann mun standa sig ekki síður vel þar. Öll væntum við mikils af Maríu Sigurðardóttur.
En þetta var ekki aðeins uppskerukvöld Leikfélags Akureyrar. Brynhildur Guðjónsdóttir var skærasta stjarna kvöldsins, vann verðlaun sem leikkona ársins og leikskáld. Að mínu mati er Brynhildur ein skærasta stjarna íslensks leikhúss. Hef fylgst með henni mjög lengi og fundist hún frábær. Hún vakti þó fyrst virkilega athygli mína og eflaust flestra þegar að hún brilleraði í hlutverki Edith Piaf fyrir nokkrum árum. Hún varð hin franska söngstjarna með slíkum glæsibrag að ekki mun gleymast. Hún vann Grímuna fyrir það hlutverk og endurtekur leikinn sem Brák. Hlakka til að sjá sýninguna vonandi fljótlega.
Var notalegt að sjá óperusöngkonuna Þuríði Pálsdóttur fá heiðursverðlaunin. Varð hugsað til hennar ömmu minnar þegar að Þuríður fékk verðlaunin og leikin voru nokkur lög með henni á meðan farið var yfir ævi hennar og hin merku verk sem söngkona og stjarna á leiksviði í óperunum. Amma dýrkaði Þuríði og Guðrúnu Á. Símonar, hinar frábæru óperustjörnur, sem voru á heimsmælikvarða og stóðu sig frábærlega, gerðu allt sitt fagmannlega og meistaralega vel. Er ekki langt síðan að ég las ævisöguna hennar Þuríðar sem er í bókasafninu hennar ömmu. Var það skemmtileg bók um mæta konu.
Þuríði man ég líka eftir sem stjórnmálamanni. Þegar ég sat minn fyrsta landsfund hjá Sjálfstæðisflokknum var Þuríður þar og einbeitt í umræðu um menningarmál, fylgdi sínum málum vel eftir einbeitt og ákveðin. Hún hafði áður verið varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og staðið sig vel í því og eiginlega var það dapurlegt að hún náði ekki kjöri sem alþingismaður fyrir flokkinn áður fyrr. Mörgum fannst hún víst reyndar orðin of gömul undir lokin þó í sjálfu sér hún væri á besta aldri og leiftraði af orðheppni og krafti.
Í kvöld flutti Þuríður fallega ræðu úr hjólastólnum sínum. Hún er farin heilsu og orðin mjög máttfarin, skugginn af þeirri öflugu konu sem við munum öll eftir frá fyrri tíð, en einbeiting hennar og orðheppni enn til staðar eins og sást af ræðunni. Flott að hún var heiðruð, enda á hún það svo innilega vel skilið fyrir sitt merka æviframlag til íslenskrar sönglistar á 20. öld.
Síðast en ekki síst vil ég hrósa Góa og Jóa fyrir frábæra frammistöðu sem kynnar kvöldsins. Fínir brandarar og magnaðar söngframmistöður. Var alveg sprenghlægilegt að sjá þá félaga endurtaka allt að því ramma fyrir ramma magnað söngatriðið úr Dirty Dancing og leika eftir fræga frammistöðu Swayze og Grey. Magnað móment, en þau voru mörg fleiri ansi góð.
![]() |
Brynhildur leikkona og leikskáld ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2008 | 21:23
Tjaldsvæðabaráttan heldur áfram - flott hjá SUS!

Fyrir ári gagnrýndi ég mjög sambærilega ákvörðun bæjaryfirvalda hér á Akureyri, en hún varð mjög umdeild og ég er enn sannfærður um að þar hafi feilspor verið stigið sem ekki var þeim til frægðarauka og var illa að því staðið að öllu leyti. Ég hef hvergi á nokkrum vettvangi sem ég hef fylgst með og heyrt rökstuðninga með og á móti þessum fáránlegu aldurstakmörkum heyrt þeirri spurningu svarað af hverju mörkin voru sett við 23 ára aldur. Af hverju ekki 22 ára, nú eða 24 ára, eða kannski 25 ára? Talan er beinlínis fáránleg.
SUS hefur allt frá sambandsþinginu á Seyðisfirði síðasta haust minnt á afstöðu sína með áberandi hætti. Þá var harðorð ályktun gegn ákvörðun Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, bæjarstjóra hér á Akureyri, samþykkt, skömmu eftir hátíðina um verslunarmannahelgina. Mikilvægt er að hún og bæjaryfirvöld séu minnt á afstöðu SUS til málsins aftur nú. Enda mikilvægt að gera það, þar sem styttist í verslunarmannahelgina að þessu sinni og enn ekki verið ákveðið hvernig staðið verður að málum að þessu sinni.
Mikla athygli vekur að öll sveitarfélögin; Akureyri, Akranes og Eyjafjarðarsveit, eru undir forystu Sjálfstæðisflokksins og bæjar- og sveitarstjórar þar allir flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum. Þess þá meiri ástæða er til þess að SUS sendi þeim harðort bréf og minni þá á stefnu þess flokks sem þau eru sjálf öll í.
![]() |
SUS mótmælir aldurstakmarki á útihátíðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2008 | 13:19
Geir sakar fréttamann um að sýna dónaskap
Mér finnst eðlilegt að spyrja sig að því hvers vegna forsætisráðherrann geti ekki svarað eðlilegum spurningum um efnahagsmál þegar eftir því er leitað og auk þess sýnt almennilega kurteisi. Mér fannst svör forsætisráðherrans ekki viðeigandi og spyr mig að því hvers vegna spurningum er ekki bara svarað. Þessi mál eru þess eðlis að allir spyrja sig að því hvað gera eigi og hvað stjórnvöld ætli sér að gera í stöðunni.
Að saka fréttamann sem vill aðeins heiðarleg svör frá þeim sem stjórna landinu um dónaskap er ekki til sóma.
Hér á eftir fara samskipti þeirra:
Sindri: Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?"
Geir: Á þetta að vera viðtal?
Sindri: Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta..."
Geir: Þú verður að hafa samband fyrir fram."
Sindri: Geir, þjóðin náttúrlega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?"
Geir: Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega."
13.6.2008 | 01:41
Nígeríusvindlið blómstrar - óþolandi sendingar
Merkilegast í þessu er að enn falla sumir flatir fyrir þessu rugli. Ekki er langt síðan að það þurfti að vara sérstaklega við Nígeríusvindlinu hér á Netmogganum, var þá varað við vefsíðum sem eru ekkert nema svikamylla í gegn, þar sem reynt er að ná peningum af fólki. Svo mikið hefur heyrst af svona svindli síðustu árin að stórundarlegt er að enn falli fólk fyrir þessu. Lottóskilaboðin að utan eru svo annar kapítuli.
Varla líður sá mánuður, stundum enn skemmra jafnvel, að maður fái ekki einhvers konar svona skilaboð um peningasvindl í tölvupósti. Ekki er hægt að taka mark á svo augljóslegri svikamyllu en vonandi eru allir meðvitaðir um að það er bara verið að hafa það að fífli með þessum póstsendingum.
Skilaboðin eru giska einföld; föllum ekki flöt fyrir peningasvindlinu. Vonandi nær Einar veðurfræðingur aftur yfirráðum yfir netfanginu sínu. Óskemmtileg lífsreynsla þetta.
![]() |
Ný tegund Nígeríusvindls herjar á netföng Gmail |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 23:27
Íslensk fegurð klikkar aldrei

En auðvitað látum við svosem enga erlenda besservissera segja okkur hvað sé fallegt og hvað ekki. Vitum það sennilega allra best og erum stolt af okkar. Veit svosem ekki hvaða staðlar og mat á fegurð ræður niðurstöðu þessarar könnunar. Sennilega skiptir það heldur ekki máli þegar að við vitum hvað er best af öllu þegar að meta skal alvöru fegurð.
Getum líka státað af því að íslensk fegurð hefur unnið til verðlauna á alþjóðavettvangi og þeir sem koma hingað verða heillaðir af henni. Ætli við getum ekki verið stoltust af því sama hvaða mat á fegurð ferðatímaritið blessaða hefur.
![]() |
Fegurstu konurnar ekki á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2008 | 17:58
Bragi Bergmann snýr baki við Sigrúnu Björk

Auðvitað eru það mikil tíðindi að Bragi láti ummæli sem þessi falla og snúi baki við Sigrúnu Björk með svo áberandi hætti. Bragi hefur verið nátengdur öllum kosningabaráttum Sjálfstæðisflokksins á Akureyri undir forystu Kristjáns Þórs Júlíussonar 1998, 2002 og 2006 og leikið þar lykilhlutverk sem pólitískur ráðgjafi ekki aðeins Sjálfstæðisflokksins heldur og mun frekar Kristjáns Þórs Júlíussonar. Hann hefur verið mjög nátengdur Kristjáni Þór og haldið utan um allar kosningabaráttur sem hann hefur tekið þátt í síðustu tíu árin.
Eðlilegt er að spyrja sig um hver áhrif þessa verði fyrir Sigrúnu Björk og Sjálfstæðisflokkinn hér á Akureyri að maður sem svo nátengdur hefur verið forystu flokksins ekki aðeins hér á Akureyri heldur og í Norðausturkjördæmi og verið lykilmaður þar snúi baki við hinum nýja leiðtoga flokksins vegna ákvarðana hennar. Um leið er eðlilegt að harma að engin niðurstaða sé komin og allt ferlið vegna verslunarmannahelgarinnar sé í einhverju biðferli, hálfgerðum hring eftir að hver og einn taki af skarið.
Get allavega ekki annað sagt, sem sjálfstæðismaður hér til fjölda ára og starfsmaður í kosningabaráttu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2006, að greinaskrif Braga og hvöss ummæli hans um bæjarstjórann sem hann vann fyrir í kosningunum 2002 og 2006 og vann mjög náið með séu bæði táknræn og veki spurningar um hvað gerist næst, þar sem Bragi er greinilega að afskrifa hana sem leiðtoga sem hann vinni fyrir í stjórnmálum.
Þegar að maður svo nátengdur Kristjáni Þór Júlíussyni skrifar svo harkalega um eftirmann hans á bæjarstjórastóli vakna stórar spurningar.
![]() |
Hvernig verður Ein með öllu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 15:18
Hasar á Akranesi - dramatískur eltingarleikur
Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við verkefni af ýmsu tagi, stór sem smá. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið.
Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni. Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þessi krísa á Skaganum.
![]() |
Eftirför lokið á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 11:36
Hvernig gátu fjársvikin í TR staðið í fjögur ár?
Þetta gat gengið mjög lengi, ótrúlega lengi, án þess að nokkur velti fyrir sér hvernig hægt var að útbúa 781 tilhæfulausa kvittun fyrir útborgunum. Ekki eru mörg ár síðan að starfsmaður Símans var dæmdur fyrir að svíkja miklar fjárhæðir út úr fyrirtækinu, ásamt vitorðsmönnum hans, meðan að það var í ríkiseigu og endaði með því að Síminn eignaðist Skjá einn, enda hafði verið dælt peningum úr Símanum í fyrirtækið.
Nú er greinilegt að innra kerfi TR var í molum og hægt að notfæra sér brotalamir í því. Það er því ekki nema von að velt sé fyrir sér hvort svona svikamylla hafi verið í öðrum ríkisfyrirtækjum. Eitt er að þetta geti gerst í skamman tíma og komist upp, en eftir fjögurra ára blekkingarleik er um víðtækan þjófnað að ræða.
Eflaust má alltaf eiga von á að glufur séu til staðar sem óprúttinn aðili getur misnotað, en það hlýtur að vera ansi sofandi stofnun sem getur orðið vettvangur svo langvinnrar og víðtækrar svikamyllu og raun ber vitni í þessu máli. Þar hafa menn vonandi lært af lexíunni, þó enginn taki á því ábyrgð.
Hvað varðar myndbirtingu af Rannveigu og upplýsingar um hana, sem ég sé að sumir velta fyrir sér, finnst mér eðlilegt að birta myndir af þeim sem brjóta af sér með þessu tagi. Nöfn í svona máli á að opinbera, ekkert síður en var í Símamálinu margfræga.
![]() |
13 sakfelldir í Tryggingastofnunarmáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 00:38
Hollenski túristinn farinn til vistar á Litla Hrauni
Væntanlega er það visst krydd í tilveruna fyrir Austfirðinga að verða miðpunktur umræðunnar á þessum degi. Seyðisfjörður er í sviðsljósinu rétt eins og Fáskrúðsfjörður fyrir réttu ári. Málin eru að vissu leyti keimlík en samt svo ólík. Þetta eru stór og sérstök mál fyrir litla byggð og sýnir mjög vel hversu mikill fíkniefnavandinn er orðinn og hversu farið er í kringum hlutina til að smygla dópinu til landsins, enda fylgdi sögunni í dag að dópið hefði verið falið það vel að ekkert átti að finna af því, skiljanlega.
Þetta er reyndar ekki nýtt mál þannig séð fyrir austan. Það eru aðeins fjögur ár frá líkfundarmálinu í Neskaupstað. Eins og flestum er í fersku minni var það fyrsta sem fannst þegar að viðkomandi maður var krufinn mikið magn eiturlyfja og mikil umfjöllun var um það mál. Farið hafði verið með manninn austur og honum varpað í sjóinn, væntanlega til að varðveita efnin en allt komst upp.
Þá var lögreglan fyrir austan og samfélagið þar í miðpunkti allrar umræðu, en nú kemur mál sem er sama eðlis að sumu leyti aftur upp í austfirskri byggð. Eflaust er það visst flashback fyrir Austfirðinga að upplifa svona mál aftur, svo skömmu eftir líkfundarmálið og stóra málið á Fáskrúðsfirði, sem þó fellur í skugga málsins í Norrænu, á sínum tíma.
![]() |
Hollendingur fluttur suður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.6.2008 | 17:41
George Clooney vill ekki hafa brjóstin of stór

George Clooney hefur verið hjartaknúsari kvikmyndaheimsins í áraraðir og heillaði fyrst konur heimsins með leik sínum í Bráðavaktinni, ER. Sannkallaður kvennaljómi alla tíð, en hann hefur svarið sig í Clooney-ættina með að láta allt flakka og hika ekki við að stuða, minnir að mörgu leyti á föður sinn Nick og föðursystur, Rosemary Clooney, sem var fræg leik- og söngkona á gullaldarárum Hollywood. Bæði voru ekki beint þekkt fyrir að mjúkmál og fannst fátt skemmtilegra en láta á sér bera og tala án hiks.
Clooney hefur verið farsæll leikari og síðustu árin ennfremur sýnt snilldartakta sem leikstjóri. Hann hlaut óskarinn fyrir rúmum tveim árum fyrir túlkun sína á CIA-leyniþjónustumanninum Bob Barnes í pólitísku fléttumyndinni Syriana. Þar fór hann algjörlega á kostum. Við sömu athöfn var hann tilnefndur fyrir leikstjórn í Good Night, and Good Luck, en tapaði fyrir Ang Lee sem hlaut verðlaunin fyrir Brokeback Mountain. Hefði þó frekar viljað að hann fengi óskarinn fyrir túlkun sína á Michael Clayton í samnefndri stórmynd.
En já, Clooney verður varla eftirlæti femínistanna eftir þetta.... eða hvað. Eða hvað finnst konum annars um þetta mat Clooney á kærustunni?
![]() |
Hætti með Söru vegna brjóstastækkunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2008 | 14:50
Enn eitt stóra fíkniefnamálið fyrir austan

Eflaust einhver merkileg saga þarna á bakvið. Þeir fyrir austan eru orðnir vanir svona stórum málum, Fáskrúðsfjarðarmálið fyrir ári og líkfundarmálið fyrir fjórum árum voru mikið í fréttum. Þetta sýnir okkur mjög vel hversu dópvandinn er mikill, sem við er að eiga. Mikilvægast er að góð gæsla sé og fylgst vel með og tekið á málum af þessu tagi.
Stóra spurningin sem yfirvöld fyrir austan verða að svara er hver sé saga þessa hollenska ferðamanns með þennan farangur - nú þegar er ljóst að þetta er frægur smyglari og fróðlegt að vita hverjir séu vitorðsmenn hans. Hrósa þeim fyrir austan hversu vel þeir stóðu sig í þessu máli, að koma upp um dópsmyglið.
![]() |
Ekki tilviljun að hass fannst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2008 | 00:40
Mun þjóðkirkjan færa sig nær samkynhneigðum?

Eðlilega hafa deilur verið um málið, enda heitar skoðanir með og á móti. Flestir muna jú eftir átökum um málið á fundi presta á Húsavík á sínum tíma, þar sem séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur hér í Akureyrarkirkju, og fleiri prestar lögðu fram umdeilda tillögu. Auk þess deildu prestar harkalega á prestaþingum þá og síðar. Nú hefur löggjafarþingið tekið af skarið, stjórnmálamenn hafa talað, og mikilvægt er að deilum um málið linni og ekki horft til fortíðarinnar.
Sá reyndar athyglisverða frétt um prestastefnuna í kvöld. Þar sást að Svarthöfði úr Stjörnustríði gekk á eftir prestum og biskupi til Dómkirkjunnar við setninguna í dag. Eflaust er þar einhver táknrænn gjörningur til að minna á deilumálið um staðfesta samvist og hversu margir innan kirkjunnar hafa verið á móti þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið.
Fréttamaðurinn sem tók saman fréttina var Guðfinnur Sigurvinsson. Hann skrifaði í mörg ár greinar á Deigluna. Ein þeirra eftirminnilegustu voru bein greinaskrif hans til biskups vegna málefna samkynhneigðra, en eins og flestir vita er Guffi samkynhneigður og augljóslega málið honum mikilvægt. Minni á þessa grein.
Stóra spurning næstu ára verður hvernig þjóðkirkjunni muni ganga að aðlaga sig breyttum tímum og ákvörðunum stjórnmálamanna um breytingar á lögum um staðfesta samvist sem opna dyrnar fyrir samkynhneigða að kirkjunni með áberandi hætti. Enn er þó spurt hvort kirkjan færi sig nær þeim breytingum með opnum huga.
![]() |
Eitt erfiðasta deilumál kirkju og samfélags til lykta leitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2008 | 20:54
Mikill heiður fyrir Margréti og Myndlistarskólann

Ég vil óska Margréti Lindquist, útskriftarnemanda í Myndlistarskólanum á Akureyri, innilega til hamingju með gullverðlaun samtaka fagfélaga grafískra hönnuða í Evrópu. Þetta er auðvitað mikill heiður fyrir hana og ekki síður Myndlistarskólann á Akureyri.
Þessi verðlaun er mikill og ánægjulegur áfangi fyrir skólann og verðlaunað það glæsilega verk sem vinur minn Helgi Vilberg, skólastjóri, hefur unnið með skólann allt frá því hann var stofnaður árið 1974. Ég fór um hvítasunnuhelgina í Myndlistarskólann á útskriftarsýningu nemenda þar. Var virkilega ánægjulegt að kynna sér verkin og það góða starf sem þar er unnið.
Sérstaklega er gott að vita að nemandi í þessum öfluga skóli hér norður á Akureyri fái slík verðlaun og segir meira en mörg orð um hversu góður skóli Myndlistarskólinn á Akureyri er og hversu vel Margrét hefur staðið sig í skólanum.
Hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að hlúa eigi vel að þessum skóla, enda hefur sést mjög vel að þar er vel unnið og hann nýtur virðingar. Margir mjög efnilegir listamenn hafa þar hafið feril sinn og hlotið mikilvæga reynslu og þekkingu á listabrautinni. Innilega til hamingju Margrét og Helgi.
![]() |
Hlaut viðurkenningu Evrópusamtaka grafískra hönnuða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2008 | 15:19
Níðingsleg framkoma við dýr
Ætla að vona að þessir ungu menn sem köstuðu grjóti í lömbin hugleiði á hvaða braut þeir eru. Þeir sem svona gera þurfa að hugsa sín mál vel. Þessi frétt sýnir hvað er mikið af sjúku fólki til, enda þarf verulega sjúkan huga til að koma svo ógeðslega fram við dýr.
![]() |
Köstuðu grjóti í ær og lömb |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.6.2008 | 02:11
Þvílíkur óhugnaður
Ekki er annað hægt en fyllast óhug við að lesa það hvernig bandarísk kona myrti ófríska vinkonu sína, ófætt barn hennar og önnur börn. Ógeðfellt og sorglegt í senn. Eiginlega er það með ólíkindum að lesa svona fréttir og hversu mikil mannvonska er til. Hverskonar sturlun er það sem rekur einstakling í að drepa fólk með svo ógeðslegum hætti. Aðeins tilfinningalaus og sturluð manneskja getur drepið vini sína svona og í ofanálag að fela líkin í þvottavél og þurrkara.
Svona fréttir leiða til þess óneitanlega að hugsað er hversu mannskepnan er grimm. Eflaust eru morð algeng um allan heim, en einhvernveginn er þetta svo sorglegt, ekkert annað hægt að segja. Svona fréttir hafa áhrif á alla sem lesa, þó þetta gerist órafjarri okkar samfélagi.
![]() |
Lífstíðarfangelsi fyrir fjögur morð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)