23.6.2008 | 13:47
Brynja Ben

Sá margar sýningar sem Brynja leikstýrði. Þeirra eftirminnilegastar eru Uppreisn á Ísafirði eftir Ragnar Arnalds, fyrrum ráðherra, Endurbyggingin, verk Vaclav Havel, fyrrum forseta Tékklands og Tékkóslóvakíu, og svo auðvitað Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur. Þessar sýningar voru allar á síðari hluta níunda áratugarins. Algjörar toppsýningar.
Krafturinn í henni og Erlingi sást mjög vel þegar að þau opnuðu leikhús heima hjá sér á Laufásvegi. Þar sá ég Ormstungu með Benedikt, syni þeirra, og Halldóru Geirharðs. Frábær sýning og leikhúsið þeirra heima var vel heppnað.
Votta Erlingi og fjölskyldu Brynju mína innilegustu samúð.
![]() |
Andlát: Brynja Benediktsdóttir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2008 | 12:21
Allt er þegar þrennt er á sumri ísbjarnanna

Eiginlega fannst mér nóg um að fá tvo ísbirni og átti ekki von á að þeir yrðu fleiri. Held að flestir hér séu orðnir þreyttir og leiðir á þessari ísbjarnarumræðu.
Guðný Jóhannesdóttir, ritstjóri Feykis, ritaði í dag flotta grein grein í Fréttablaðið um ísbjarnarmál sem ég vil benda á.
![]() |
Hvítabjörn á Skaga? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.6.2008 | 00:51
Er búið að finna hundaníðinginn?
Ánægjulegt er að leit lögreglunnar að eiganda hundsins sem urðaður var lifandi hafi borið árangur og viðkomandi fundist, enda er mikilvægt að hundaníðingnum verði refsað og tekið á máli hans. Ekki er hægt að sætta sig við svo hrottalega meðferð á dýri og mikilvægt að opinbera nafn þess sem ætlaði að kviksetja hundinn.
Dýravinum öllum er brugðið vegna þessa máls - reiði alls almennings hefur komið vel fram. Eðlilegt er að fólk sýni reiði sína vegna svo hrottalegrar framkomu við dýr sem getur ekki varið sig. Þetta er ómannúðlegur og grimmilegur níðingsskapur af verstu sort.
Stóra spurningin er svo hvort hundurinn fari aftur til eiganda síns. Er hægt að sætta sig við það?
![]() |
Eigandi hvolpsins fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2008 | 16:23
Þrumandi veðurstuð
Fæ alltaf nettan hroll þegar talað er um þrumur og eldingar. Kannski er þetta bara kvikmyndaupplifun, en oftast nær er þetta veður notað til að undirstrika ógn eða kuldalegan kafla í kvikmyndum, kalla fram viðbrögð og netta hræðslu.
Eflaust eru þeir ekkert ógurlega hræddir við þetta veður fyrir sunnan en hristast yfir því í takt við skjálftakippina. Vonandi gengur þetta fljótt yfir.
Veðrið hér hefur verið lala í sumar. Ekkert spes svosem, aðallega gluggaveður að undanförnu. Vonandi mun Eyjólfur hressast í júlí.
![]() |
Þrumuveður gengur yfir landið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2008 | 15:01
Fylgislækkun er áhyggjuefni fyrir Geir og Þorgerði

Sögusagnir eru um að samstarf stjórnarflokkanna sé erfitt og losaralegt. Á hverjum degi sjáum við merki þess að þar er mikill losarabragur - einkum af verklaginu, þar sem hver og einn þingmaður leikur lausum hala og erfitt að henda reiður á því hver segir og gerir það sem sett er á oddinn pólitískt. Hver þingmaður getur, vegna öflugs þingmeirihluta, tekið sólóspil á sínum taktfasta hraða og verið eigin herra í skoðunum og tali. Svipan er ekki á lofti og greinilegt að viss ólga kraumar undir pottinum og stundum hefur soðið allhressilega upp úr.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið lengi við völd, í rúm sautján ár, sem er sögulegur tími í forystu ríkisstjórnar. Varla er undrunarefni að fylgið rokki eitthvað til eftir svo langan tíma við völd. Í þeirri stöðu sem við blasir núna er spurt um trausta forystu, hver geti stýrt málum með ábyrgum hætti. Einn mesti styrkleiki Geirs H. Haarde sem stjórnmálamanns felst í því að hann hefur haft áru leiðtogans sem virkar traustur og öflugur. Æ fleiri spurningar hafa þó vaknað í þeim efnum eftir farsann í borgarmálunum og vandann í efnahagsmálunum.
Svarið við þeim vanda er að taka á málum og sýna þá traustu forystu sem þjóðin þarf á að halda við erfiðar aðstæður. Við erum komin í óvissuástand þar sem mikilvægt er að traust fólk sé við stýrið. Verkefni forystu Sjálfstæðisflokksins er að standa undir nafni sem traustur flokkur í forystu, svipað og var á þeim tíma er Davíð Oddsson leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sögulegra kosningasigra og traustrar forystu sem markaði hann sem sigursælasta stjórnmálamann Íslandssögunnar.
Nú eru greinilega aðrir tímar - spurt er hvort Sjálfstæðisflokkurinn og forystumenn taki á málum af ábyrgð og festu. Fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins er mikilvægt að klára þetta kjörtímabil, leysa þau vandamál sem til staðar eru og sýna að hægt sé að vinna með Samfylkingunni. Óvissa er yfir hversu farsælt þetta stjórnarsamstarf verði og því verður óvissan meiri en ella og kjósendur sýna óánægju sína án hiks.
Kannski er til of mikils mælst að Sjálfstæðisflokkurinn sigli lygnan sjó ár eftir ár og finni ekki fyrir því - allir flokkar taka sínar dýfur, hæðir og lægðir. Ekki er þó til of mikils mælst að forysta Sjálfstæðisflokksins sé öflug og stýri traustu stjórnarsamstarfi og sýni okkur að hann leiði ríkisstjórn sem er samhent og öflug á örlagatímum.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar í könnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.6.2008 | 03:19
Nærbuxnavandamál í heimspressunni
Aumingja konan. En kannski er betra að komast í fréttirnar fyrir þetta frekar en ekki neitt. Vonandi verður augað í lagi og auðvitað vona flestir að henni gangi betur að fara í nærbuxurnar framvegis.
![]() |
Nærbuxnaslys kært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2008 | 16:29
Glæsilegur sigur - nýjir tímar í kvennaboltanum?
Ekki fer á milli mála að þetta landslið er að blómstra - þjálfari og leikmenn samstíga í góðum verkum. Þarna er gott starf til fjölda ára að skila sér svo sannarlega. Auðvitað eru nýjir tímar í kvennaboltanum. Fókusinn er nú á kvennalandsliðið mun frekar en karlaliðið, sem er heillum horfið og í tómum vandræðum. Nú flykkist fólk á völlinn til að sjá stelpurnar okkar, sem eru að uppskera flott.
Þetta er auðvitað stórglæsilegur árangur - loksins er kvennaboltinn að fá verðskuldaðan sess. Nú er hann í ljóma sigursældar og góðs árangurs. Þeir dagar eru liðnir að litið var á kvennaboltann sem minna spennandi en karlaboltann. Svo góður árangur byggir ekki bara góða liðsheild heldur tryggir að landsmenn vilja fylgjast með. Landsmenn hafa sjaldan stutt eins vel við bakið á kvennalandsliðinu og nú, enda er stemmningin þannig að landsmenn fylgjast með.
Ekki fer á milli mála, eftir þennan sigur og á Serbum í fyrra, að þetta er lið sem eru allir vegir færir. Þetta er lið sem getur fært góða sigra, liðsheildin er öflug og landsmenn styðja stelpurnar 110%. Það allt skiptir máli. Þetta er blanda sem getur varla klikkað. Það sjáum við vel á þessum fagra júnídegi.
![]() |
Ísland vann stórsigur á Slóveníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2008 | 11:04
Ólafur Ragnar heiðrar Steingrím Hermannsson

Langt er um liðið síðan Ólafur Ragnar hóf stjórnmálaferil sinn, sem varð stormasamur og litríkur en hann kom við í nokkrum flokkum áður en hann hélt til Bessastaða og sagði sig þá úr Alþýðubandalaginu, þar sem hann var formaður í átta ár. Fyrstu skrefin voru þó stigin innan Framsóknarflokksins. Alla tíð var Ólafur Ragnar umdeildur, ekki síður innan Framsóknarflokksins en á öðrum þeim vettvangi sem hann valdi sér áður en að hann varð forseti Íslands, með fyrri eiginkonu sína, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, sér við hlið fyrir tólf árum. Hin mikla gæfa Ólafs Ragnars var þá að vera vel giftur.
Ólafur Ragnar sat í miðstjórn Framsóknarflokksins 1967-1974 og í framkvæmdastjórn 1969-1973. Á þessum fyrstu árum Ólafs Ragnars í Framsóknarflokknum var Eysteinn Jónsson, formaður flokksins. Eysteinn var öflugur maður í íslenskri stjórnmálabaráttu. Hann varð yngstur allra ráðherra, leiddi flokkinn og var lengi forystumaður á sínum heimavelli í pólitík fyrir austan. Í skjóli Eysteins Jónssonar hóf Ólafur Ragnar Grímsson stjórnmálaþátttöku sína. Það kom mér því ekki að óvörum þegar forsetinn Ólafur Ragnar Grímsson flutti ávarp til heiðurs Eysteini á aldarafmæli hans í nóvember 2006.

Segir Ólafur Ragnar svo í minningargreininni um það er Eysteinn, þar í þeirri ferð, tilkynnti Ólafi Ragnari að hann ætlaði að hætta formennsku í flokknum árið 1968: Í skugga sólarinnar, sem sleikti hin sögufrægu fjöll, sagði hann mér að nú ætlaði hann að hætta formennsku í Framsóknarflokknum. Rétti tíminn væri kominn. Honum varð ekki þokað þótt ég beitti öllum þrótti og ákafa ungs manns til að telja honum hughvarf. Auðvitað lét svo sterkur stofn íslenskra stjórnmála ekki ungan strák hagga sér. Hugurinn var skýr. Ákvörðunin hafði verið tekin. Rökin voru margvísleg en þó var fjarri því að hann ætlaði að draga sig í hlé.
Í upphafi áttunda áratugarins lenti Ólafur Ragnar upp á kant við forystu flokksins og hann stofnaði ásamt fleirum ungliðum í Framsóknarflokknum, samtök Möðruvellinga, sem voru til vinstri í flokknum. Ólafur Ragnar vildi kanna þann kost að sameina Framsóknarflokkinn og vinstri flokkana í einn flokk. Ólafur Jóhannesson, sem á þeim tíma var forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, var andvígur þessum hugmyndum og Ólafur Ragnar yfirgaf flokkinn ásamt samherjum sínum með miklum hvelli. Hann gekk þá í flokk Hannibals Valdimarssonar, Samtök frjálslyndra og vinstri manna og var t.a.m. formaður framkvæmdastjórnar flokksins 1974-1976. Eftirmálann þekkja allir.
Steingrímur Hermannsson rakti eftirminnilega sameiginlega pólitíska sögu sína og Ólafs Ragnars Grímssonar í ævisögu sinni. Þeir voru ekki samherjar í lykilmálum sem leiddu til þess að Ólafur Ragnar sagði skilið við Framsóknarflokkinn og samstarf við Steingrím Hermannsson, en um tíma leit svo út fyrir að þeir myndu leiða Framsókn saman hlið við hlið. Þeir komu þó saman síðar og mynduðu stjórn sem komst í sögubækurnar fyrir ýmsa hluti. Aftur mætast þeir nú á áttræðisafmæli framsóknarleiðtogans.
Eflaust mun Ólafur Ragnar mæra afmælisbarnið Steingrím með sama hætti og Eystein, þann stjórnmálamann sem mest mark setti á hann og mótaði til framtíðar. Fróðlegt verður að lesa um hvaða sess Steingrímur skipar í pólitískri sögu hans, nú þegar að Ólafur Ragnar heldur áfram að heiðra framsóknarleiðtoga fyrri tíðar í ræðuhöldum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2008 | 00:26
Hálendisbjörninn reyndist vera hestur

Eiginlega er ekki laust við að visst móðursýkisástand hafi ríkt í samfélaginu eftir að sumar bjarnanna hófst og þessar skepnur björguðu fréttagúrkunni fyrir fréttamönnum og okkur fréttafíklunum. Sögurnar um hversu hættulegir birnirnir eru og hvort að hægt sé að veiða þá hafa verið ráðandi í umræðunni og allir virðast vera orðnir ísbjarnasérfræðingar allt í einu. Þeir sem vildu bjarga björnunum voru allt í einu vissir um að þetta væru ekki svo hættulegar skepnur.
En jæja hesturinn á Hveravöllum fær sínar fimmtán mínútur af frægð. Hefði samt bjargað fréttagúrkunni aftur að fá einn ísbjörninn enn í sviðsljósið - fréttamenn gráta eflaust fréttatækifærið sem hálendisbjörn hefði fært þeim svona um hásumarið þegar að Einbjörn og Birna á Skaga skipta ekki lengur svo miklu máli.
![]() |
Kom ísbjörn upp um hestana? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2008 | 22:11
Dramatík í Vín - ævintýralegur sigur Tyrkja

Króatar voru alveg eins og sprungin blaðra eftir mark Senturk og fundu ekki fjölina í vító, klúðruðu þrem vítaspyrnum og færðu Tyrkjum sigurinn, sem þeir áttu svo sannarlega skilið eftir þennan dramatíska lokakafla. Fannst eins og æðri máttarvöld væru með Tyrkjum og stýra þeim í gegnum leikinn. Hvað er annars hægt að segja eftir svona leik? Mögnuð frammistaða. Lið sem nær svona endaspretti getur farið mjög langt.
EM-sumarið hefur verið stórskemmtilegt. Hef horft á flesta leikina, ekki getað séð þá alveg alla. En þetta er pottþétt kvöldstund og spennandi leikir framundan á næstu dögum. Finnst Sjónvarpið haf staðið sig vel með EM-umfjöllunina. Þorsteinn J. og spekingar hans að brillera með fínan pakka. Ekki hægt að hafa þetta betra. Á morgun er svo meiri spenna þegar Hollendingar og Rússar mætast.
Finnst Hollendingar vera með skemmtilegasta lið mótsins, verið stjörnur þess það sem af er. En fyrst verða þeir að leggja Rússa og svo annaðhvort Spánverja eða Ítali. Fróðlegt að sjá hvernig það gengur. Hef alltaf haldið með Þjóðverjum svo ég vona að þeir nái að slá á tengsl Tyrkjanna við æðri máttarvöld í næstu viku.
![]() |
Tyrkir unnu í dramatískum leik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2008 | 12:56
Hryllileg meðferð móður á barninu sínu
Þetta er stingandi veruleiki sem þarna sést. Því miður hefur sést vel í gegnum árin að mikil grimmd er í þessum heimi. Ofbeldi, bæði líkamlegt og sálrænt, er orðið of ráðandi þáttur samfélagsins og það er orðið svo margt ógeðslegt sem kemur upp. Gott dæmi um það hérna heima eru alvarleg mál kennd við Breiðuvík og Byrgið, sem mikið hafa verið í umræðunni. Það allra versta er þó þegar að foreldrar leggja hendur á börnin sín eða hefta frelsi þeirra.
Sálrænt ofbeldi er engu skárra en líkamlegt ofbeldi. Það vill oft leggjast þyngra á sálina. Það er vissulega hægt að bæla fólk með ýmsum hætti og slíkt ofbeldi er og verður jafnt því þegar að fólk er jafnvel barið sundur og saman. En það er alltaf ömurlegt að lesa svona fréttir.... því miður held ég að þessi bandaríska móðir sé ekkert einsdæmi.
![]() |
Móðir misþyrmdi fimm ára syni sínum skelfilega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2008 | 00:21
Mun hálendisbjörninn bjarga fréttagúrkunni?
Fannst þetta hljóma eins og æðsti draumur fréttamannanna frekar en veruleiki. Fyrsta spurningin sem ég beindi til vina minna, sem sagði mér frá þessu á meðan við horfðum á spennandi leik Þýskalands og Portúgals á EM, var hvort þetta væri ekki örugglega bara skógarbjörn. Það var hlegið dátt, enda er þetta aðallega fyndið bara.
Kannski er hálendisbjörn næsta fréttaefnið á þessu gúrkusumri fjölmiðlanna, þar sem pólitíkin virðist hjúpuð álpappír fram á haustið eins og bökunarkartöflurnar og fátt annað merkilegt er að gerast eftir að Hillary Rodham Clinton steig af sviðinu og tryggði spennandi slag ellilífeyrisþega og blökkumanns um Hvíta húsið, eða fulltrúa tveggja minnihlutahópa samfélagsins eins og einn snillingurinn sagði.
Mikið væri nú skemmtilegra ef þetta væri skógarbjörn frekar en ísbjörn. Fyrir fjölmiðlana alltsvo.
![]() |
Hálendisbjörn er hugsanlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2008 | 16:52
Kennari dæmdur fyrir samband með nemanda
Í dag þyngdi Hæstiréttur dóm yfir karlmanni sem átti í kynferðislegu ástarsambandi með nemanda sínum. Hlaut hann 15 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm en í héraðsdómi var dómurinn skilorðsbundinn. Mikla athygli vakti að í héraðsdómi fékk kennarinn vægan dóm á forsendum þess að gagnkvæmt ástarsamband hefði verið til staðar. Mikilvægt er að Hæstiréttur felli þessa umdeildu túlkun úr gildi og þyngi dóminn.
Enda er varla hægt að telja það til refsilækkunar, enda ekki eðlilegt að kennari svæfi hjá nemanda sínum, einkum og sér í lagi þar sem honum er treyst fyrir að sjá um kennslu og um leið eiginlega uppeldi hennar að vissu marki. Mikið var skrifað um þetta mál þegar dómur héraðsdóms lá fyrir á sínum tíma og mikið deilt um hvort hægt sé að telja það gagnkvæmt samband þegar að kennari sefur hjá nemandi sínum.
Enda hlýtur það í sjálfu sér að teljast alvarlegt mál að kennari hefji samband við nemanda sinn, gildir einu hvort gagnkvæm ást sé til staðar eða hrifning. Þegar að svona kemur til sögunnar og nemandinn er ekki sjálfráða hlýtur að teljast eðlilegt að litið sé svo á að kennarinn sé að misnota stöðu sína sem kennari til að hefja samband af því tagi.
Hæstiréttur kemur með afgerandi túlkun á þessu umdeilda atriði og dómurinn er afgerandi hvað það varðar að kennarinn braut alvarlega af sér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2008 | 00:55
Einbjörn með orma og illa á sig kominn

Bæði Einbjörn og Tvíbjörn virðast hafa átt það mjög erfitt áður en þeir náðu landi hér og verið ekki upp á sitt allra besta. Eflaust má velta því lengi fyrir sér hvort þau hafi haft heilsu og styrk til að komast aftur "heim" eða lifa lífinu í dýragarði, hafi getað átt sér líf eftir Íslandsförina. Þessar rannsóknir svara mörgum spurningum um ástand bjarna og aðstæður þeirra.
Finnst hafa verið talað um ísbirnina tvo frekar út frá tilfinningalegum rökum en raunhæfum. Margir sem vildu bjarga þeim voru ekki meðvitaðir um hætturnar sem af þeim stafar og eru að koma í ljós í þessum rannsóknum og staðreyndum um hvort þeir hefðu þolað flutning frá Íslandi. Ágætt er að velta þessum málum fyrir sér.
Eflaust er það mannúðlegt að vilja bjarga þessum dýrum en það hefur sést vel í þessum tveim málum að það er ekki raunhæft nema að allar aðstæður séu í lagi. Það var ekki þannig á þessu sumri.
![]() |
Þverárfellsbjörninn smitaður af þráðormi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2008 | 17:13
Hið eina rétta að fella Birnu á Skaga
Slæmt ástand dýrsins gefur svo til kynna að vonlaust hafi verið frá upphafi að flytja dýrið burt. Enda var þetta ekki sætur tuskubangsi eða gæf skepna, heldur svelt og langþreytt birna sem villtist af leið og virtist ekki tilbúin að láta mannfólkið ná sér. Eins og þrautreyndur ísbjarnasérfræðingur sagði, að mig minnir í hádegisfréttum útvarps, var þetta verkefni sem var erfitt frá upphafi og greinilegt þrátt fyrir lagasetningar að tillögur um björgun voru frekar í orði en á borði.
En allt var reynt og vissulega var það gott, þó að ekki fari allir sáttir frá þessu máli og enn sé talað eins og þetta hafi verið auðvelt og harmað að dýrið væri skotið, þó vel væri vitað að þetta yrði auðvelt einkum þar sem engin saga er fyrir því að reynt sé að bjarga þessum dýrum hérlendis. Kunnáttu og þekkingu var ábótavant í bæði skiptin en eflaust er hægt að læra eitthvað á þessu.
![]() |
Ísbjörninn ekki í góðu ásigkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2008 | 15:51
Er hjónabandssæla stjórnarflokkanna að súrna?

Eflaust mátti eiga von á þessu. Stjórnin hefur mjög ríflegan meirihluta á Alþingi. Þar geta þingmenn tekið þeysireið á eigin vegum, kveikt á sviðsljómanum með óábyrgum skrifum og pólitísku tali og hype-að sig upp án þess að þurfa að velta mikið fyrir sér hverjir eftirmálarnir verði. Það er engin svipa á lofti, þetta er eins og heimili þar sem börnin ala sig upp sjálf og enginn agi er yfir. Kannski er þetta fyndið og skemmtilegt fyrsta slagið en það gæti farið að syrta í álinn er líður á tímabilið.
Að mörgu leyti minnir þessi ríkisstjórn mig á Viðeyjarstjórnina 1991-1995. Þar var sagt og gert allt sem þingmönnum og ráðherrum datt í hug. Þá var meirihlutinn reyndar mun naumari og er að lokum tímabilsins kom var stjórnin búin að missa fjögur varadekk og var í járnum. Mér fannst reyndar Viðeyjarstjórnin skemmtilegri og skoðanaágreiningurinn þá litríkari og kostulegri í raun og veru. Mér finnst þetta frekar daufgerð stjórn. Ýmislegt veldur því. Mér finnst fúttið ekki mikið og því verður skoðanaágreiningurinn sjálfsagðari og meira hlegið að honum, frekar en tekið mark á því.
Að því mun koma um síðir að þessi sólóleikur vissra þingmanna geti vegið að lífi þessarar ríkisstjórnar. Þar ræður mestu hversu traust samstarf formanna flokkanna verði og hvort þau geti miðlað málum. Þetta er öðruvísi stjórn en samstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í tólf ár hvað það varðar að ef vandamál komu upp var tekið á þeim og flokkarnir voru merkilega samstíga um mörg mál, þrátt fyrir átök, stundum harkaleg, en þó að mestu leyti bakvið tjöldin.
Geir og Ingibjörg eru í þeirri stöðu að vera í sambúð sem er á mörkum þess að vera hamingjusöm, kannski mun frekar hagsmunasambúð þar sem ytri ástæður ráða ástríðunni. Fróðlegt verður að sjá hvort ástríðan aukist er líður á tímabilið eða þau haldi út í fjögur ár með vandræðabörnin á heimilinu að hlaupa útundan sér. Ef hagsmunirnir að baki sambúðinni bresta getur enginn pólitískur hjónabandsráðgjafi fundið ástríðublossann fyrir þau.
![]() |
Harðari tónn í garð samstarfsflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2008 | 01:05
Össur gagnrýnir hvítabjarnarveiðar á Skaga
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og fyrrum umhverfisráðherra, skrifar athyglisverðan pistil í kvöld þar sem hann gagnrýnir drápið á birnunni á Skaga að viðstaddri Þórunni Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, og hvernig staðið var að hvítabjarnarveiðunum. Vill hann breyta lögum um veiðar á hvítabjörnum, sem upphaflega voru sett í ráðherratíð hans en breytt í ráðherratíð Sivjar Friðleifsdóttur árið 2002.
Sjálfur var Össur gagnrýndur harkalega á fyrstu ráðherradögum sínum í umhverfisráðuneytinu er ísbjörn var drepinn á Vestfjörðum og málið varð allt mjög eftirminnilegt. Eins og flestir muna voru lögin sett til að koma í veg fyrir að ísbirnir væru drepnir sjálfkrafa hérlendis og uppfylla alþjóðlega samninga. Auk þess vildi Össur koma málunum lengra og taka á vafaatriðum. Merkilegast af öllu er þó að engin áætlun hefur verið til staðar og ráðaleysið er fyrri björninn kom í þessum mánuði var algjört.
Ekki var hægt að sjá annað en flumbrugangur, hik og almennur vandræðagangur hafi verið í fyrra skiptið. Í hið seinna virtust embættismenn og ráðherrann staðráðin í að fanga dýrið en atburðarásinni við Skaga lauk með því að birnan var felld. Augljóst er að Össur gagnrýnir hvernig staðið var að málum og hefur miklu við málið að athuga. Ekki er annað að sjá en erfiðara hafi verið að fara eftir lögunum en stefnt var að, enda enginn undirbúningur til staðar við því hvernig taka ætti á aðstæðum er ísbjörn kemur til landsins.
Má vera að umhverfisráðuneytið og undirstofnanir þess hafi lært sína lexíu síðustu vikurnar en greinilega vantaði eitthvað upp á raunhæfa framkvæmd laganna og hvernig þau virki er ísbjörn kemur til landsins áður en þessir tveir birnir komu. Það er lexían fyrir ráðherrann sem kom norður til að sjá birnuna skotna.
![]() |
Daprir en um leið sáttir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2008 | 20:13
Blóðrauður ísbjarnarblús á Skaga

Væntanlega var ekkert annað hægt að gera. Sennilega var allt tal um að svæfa birnuna og flytja hana burt, hvort sem væri í dýragarð eða til síns heima draumórar frá upphafi þrátt fyrir að allt væri gert, sérstaklega út frá pólitískum sjónarhóli til að reyna að bjarga því sem bjargað væri fyrir birnuna og ráðherrann sem fékk yfir sig væna gusu af neikvæðni og ádeilu frá eigin flokksfólki rétt eins og öðru fólki í samfélaginu og kom illa fyrir þar að auki.
Ef marka má fréttir var dýrið mjög illa sært og ekki vel á sig komið og hefði ekki þolað flutning frá svæðinu. Þetta voru því endalok sem voru óumflýjanleg. Fagaðilar sem best til þekkja halda því allavega fram og eðlilegt að taka mark á því, burtséð frá því hvað kemur öðrum vel á þessari stundu, eða í tali þeirra sem helst hafa talað fyrir björgun. Ekki gengur að hafa svona dýr laust í náttúru Íslands og þetta því eðlileg endalok. Allt var þó reynt en það var ekki nóg.
En væntanlega er þetta hámark hinnar pólitísku óheppni fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur. Á hálfum mánuði hafa tveir ísbirnir dáið á hennar ráðherravakt og náttúrusinnar kenna henni greinilega mjög um. Svo þegar að hún telur sig geta snúið ógæfunni við snýr hún aftur úr fríinu á einkaflugvél og ætlar að fanga stemmninguna til að vera bjargvættur dýrsins. Allt fer svo á annan veg en ætlað var. Ekki nýtur Þórunn sviðsljóssins í kvöld sennilega.
Þessi blóðrauði ísbjarnarblús er nett fíaskó fyrir ráðherrann. En væntanlega var ekkert annað hægt að gera. Svo fer sem fer, sagði forðum.
![]() |
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.6.2008 | 17:59
Vanvirðing við íslenska fánann
Finnst það nú frekar dapurlegt að íslenska fánanum sé sýnd slík vanvirðing á þjóðhátíðardeginum eins og maðurinn gerði sem klippti hann í ræmur við Stjórnarráðið. Vel má vera að fólk hafi ólíkar skoðanir á því hvort fáninn okkar sé fallegur eða hvort aðrir fánar fyrri tíðar, t.d. fáni Jörundar, Hvítbláinn eða fálkafáninn hafi betri sögulegar tengingar fyrir Ísland.
Þetta er mjög lágkúruleg framkoma sérstaklega á þessum degi og setur skugga á hátíðlegan dag. Eflaust er sá sem þetta gerði að kalla eftir athygli með einum eða öðrum hætti eða senda pólitísk skilaboð, greinilega anarkísk. Svosem gott og blessað að hafa skoðanir en það að skera fánann á Stjórnarráðshúsinu í ræmur á þjóðhátíðardeginum er ekki beint vel viðeigandi.
Ég hef reyndar alla tíð verið sérstaklega stoltur af íslenska fánanum, finnst hann fallegur og held að flestir séu á þeirri skoðun. Enda flagga flestir landsmenn á þessum degi og allt er vel skreytt í fánalitunum á hátíðisdeginum, sérstaklega á þessum degi auðvitað. Hef ekki orðið var við þrýsting um að breyta fánanum eða háværar skoðanir þess efnis að hann sé ekki viðeigandi.
Þetta er auðvitað bara vanvirðing við þjóðfánann og með þessu eru lög brotin. Allt tal um pólitíska yfirlýsingu eða byltingareðli hljómar hlægilegt á þessum degi þegar fólk um allt land flaggar þjóðfánanum og fánaskreytingar eru í öllum bæjum.
![]() |
Skar íslenska fánann á Stjórnarráðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2008 | 13:36
Spenna á Skaga - björgum Bangsa og Þórunni
Átti ekki að flytja bangsa heim á norðlægar slóðir. Hvað varð um gaulið um að hann ætti að vera heima hjá sér. Verða heimkynnin kannski að búri í dýragarði, breyta eigi dýrinu í sýningarskepnu í dönskum skemmtigarði bara til þess eins að Þórunn megi hökta lengur í ráðherrastól sínum. Fyndið.
Þetta á eftir að verða eitt vænt skuespil á Skaga, spái ég.
![]() |
Beðið átekta að Hrauni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |